Guffinn

...bara ég...

23.10.2007 13:09:31 / guffi2712

farin...

http://www.123.is/hb 


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 16:00:42 / guffi2712

Fyrsta fallöxin í dag

Jæja, í dag var fyrsta prófið. Það var 20% próf í áfanganum rannsóknaraðferðir í félagsvísindum 1. Þetta var alveg sanngarnt próf en ég að sjálfsögðu klúðraði málunum. Það var ein 20% spurning sem ég las hreinlega vitlaust þannig að ég var komin með rúlega hálfa síðu pistil, frábæt svar um það sem ég hélt aðhann væri að tala um þ.e. frumbreytur og fylgibreytur, sambandið á milli þeirra o.s.frv. Svo áður en ég ætlaði að skila las ég að sjálfsögðu fyrir prófið eftur af góðum vana og sá þá að það var augljóslega verið að tala um megindlegar- eigindlegar breytur.  Jæja, vonandi næ ég.

Núna er það svo námskeiðið að læra að læra....

Hafðu það gott 


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 10:00:40 / guffi2712

HA vs. MA???

jæja, The discovery of society. tíminn líður ekkert en samt allt of hratt. Ég sit núna í skólanum og er að reyna að komast yfir námsefnið fyrir morgundaginn en eins og vanalega er þetta algjört spretthlaup. Maður er alltaf að gera sér vonir um að maður geti hugsanlega gefið sér tíma til þess að gera húsverkin eða hafa það kósí svona eitt kvöld...en við vitum það öll að það eru ekki miklar líkur á því að það takist.

Háskólanám er ekkert líkt menntakólanámi, þetta er ekki kennsla, þetta er aðhald og örlítil leiðbeining í gegnum bækurnar sem eru í raun kennarinn. Kosturinn er þó að megnið af því sem maður er að læra er áhugavert fyrir mann sjálfan svo það hjálpar til. En svo er þetta allt á ensku...bæði kostir og gallar; þetta er erfitt og tekur gífurlegann tíma en maður hefur gott af þessu og fær hægt og rólega góðann orðaforða.

Félagslífið. Hérna kynnist maður mikið af nýju fólki en maður sér alveg að brautirnar halda sér mikið saman og blandast minna við fólk úr öðrum deildum nema kannski við fólk sem það þekkir utan skóla. En svona er upplifun mín núna, eingin alhæfing. Í fyrstu vikunni var svo kölluð ,,velferðarvika" og þar voru fyrirlestrar um námið, skólann og annað því tengt. Einnig var grill í skólanum á miðvikudag (sem ég komst nú ekki á;) og deildirnar hittust á skemmtistöðum bæjarins á fimmtudagskvöldinu. Þar var borðað og drukkið og síðan mættust allir á Strikinu. Daginn eftir eða á föstudaginn var klukkunni svo hringt og það var hún Hófý sem sá um það. Svo var lagt í leiðangur á útivistasvæðið Hamrar og þar sprellað og svo borðað og drukkið. Að lokum hittist stjórn FSHA (sem sá um þetta allt saman) og nemendur á amor. Á þessum samkomum sá maður mikinn mun á MA og HA. Í MA er Díónýsus hinn mesti sóða kall en hann vistðist vera góður vinur FSHA, ef ekki besti vinur félagsins.

Þriðja vikan er gengin í garð og allt rosa gaman. Göngur um næstu heldi (og ég er ennþá lasin). Trausti greiið sleit hásinina svo að hann gegnur nú ekki mikið. Algjör synd það er ekki einu sinni hægt að nota hann í bílstjóra á gánaballið:cry:. En jæja, ætla að fara koma mér heim í smástund og nærast áður en átökin við enskuna halda áfram.

:S


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 08:23:54 / guffi2712

Mín bara dugleg

Klukkan 8 var mín komin upp í HA og byrjuð að læra, á ekki að vera mætt fyr en kl 10

(spurning hvort að þessi orka endist í allann vetur...???)


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.08.2007 10:38:42 / guffi2712

Byrjuð í skólanum...en formleg kennsla ekki hafin, SEM BETUR FER

Jæja, núna er ég í skólanum að bíða eftir næsta tíma 8)

Mér líst ágætlega á þetta en ég er samt að pæla í því að skipta úr samfélags- og hagþróunarfræði yfir í þjóðfélagsfræði. Þetta er í raun mjög svipað t.d. er fyrsta og þriðja önnin alveg eins, en annars er munurinn sá að það er meira val í þjóðfélagsfræðinni. Þegar ég fæ að velja þar þá á maður að fara m.a. í byggðaþróun og eitthvað svoleiðis í samfélags- og hagþróunarfræðinni...og að sjálfsögðu get ég valið líka um það í þjóðfélagsfræðinni sem og auka sálfræði, fjölmiðlafræði eða eitthvað annað. En ég hef í raun alla önnina til þess að ákveða mig þar sem að þetta er allt eins í byjun, svo þetta kemur í ljós.;)

Annars er ekkert að frétta. Ég er rétt byrjuð að glugga í kennslubækurnar og þar sem þetta er allt á ensku er ég strax við það að flippa úr stressi.8| Eina íslenska kennslubókin er nú samt komin að hluta til inn í hausinn á mér, tjahh...allaveganna er ég búin að lesa hluta af henni og miðar ágætlega (veit ekkert hvað situr eftir:$). Sem betur fer byrjar kennslan sjálf á mánudaginn næsta svo ég hef nokkra daga til þess að lesa, læra, vinna og hjálpa bústjóranum og sulli.is að koma sér í sveitina (laugardagurinn).:D

Jæja, ætla að fara gera eitthvað gagnlegara en að tuða eitthvað um sjálfa mig á netinu, t.d. læra:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.08.2007 16:13:03 / guffi2712

HA

Jæja, smá tilkinning. Eins og flestir þeir sem þekkja mig vita þá er ég mjög óákveðin og tek yfirleitt stærstu ákvarðarnirnar á síðustu stundu og jafnvel eftir það...en allaveganna... ég er EKKI á leið í VMA eins og ég ætlaði mér, ég viðurkenni það að mig langar til þess að kíkka þangað í nám en ég einhvernvegin hugsa á ég egi aldrei eftir að verða iðnaðarmaður/kona.

Ég er á leiðinni í Háskólann á Akureyri á félagsvísinda- og lagadeild að læra samfélags- og hagþróunarfræði. Takk fyrir.

Kannski á þetta háskólanám ekki við mig en ég held að ef ég fari ekki í háskóla núna þá veit ég ekki hvenær eða hvort það verður einhverntíman. Ég fer miklu frekar úr HA yfir í VMA ef ég gefst upp (SEM ÉG ÆTLA EKKI AÐ GERA!) heldur en úr VMA yfir í HA ef ég finn mér ekkert við hæfi þar.

Jæja annars er fátt að frétta. Við hjúin erum búin að koma okkur ágætlega fyrir í íbúðinni og ég skelf af hræðslu við það að fara að byrja í skóla eftir nokra daga.

jæja, ætla að fara að labba í vinnuna (ég er svo dugleg að labba:D)


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.07.2007 18:51:24 / guffi2712

Ársspáin 2007 af spámaður.is

Fjölskylda | * 2007 *

Ástarsambönd þín eru mun flóknari í ár en áður því þú ert glaðvær og sönn/sannur en líka hugsjónamanneskja og eirðarlaus. Að elska þig er stundum æsandi og oft sárt en ávallt ögrandi! - Ársspáin 2007

Vatnsberinn 20.jan - 18.feb
Jafnrétti, hreinskilni, forvitni og vinarþel eru með bestu og aðdáunarverðustu kostum þínum. Ekkert af þessu minnkar þótt hýja bætist við. Hlýjan og væntumþykjan verður einungis til þess að stjarna þín skín enn skærar árið 2007.

Fiskarnir 19.feb - 20.mars
Í uppvextinum bíðum við öll eftir að draumur okkar rætist. Þó um hugaróra sé að ræða þá kemst fiskurinn ansi nærri við að upplifa óskir sínar árið 2007.

Hrúturinn 21.mars - 19.apríl
Þú veist að það hefur hvetjandi áhrif á fjölskylduna þegar börnin koma því þau búa yfir mörgum eiginleikum foreldra sinna sem þeir horfast ekki í augu við. Þér ber að sinna fólkinu þínu betur árið framundan, vernda það og leiðbeina, elska það og næra og sleppa því síðan frjálsu.

Tvíburarnir 21.maí - 21.júní
Ef þú tileinkar þér að hleypa reiðinni eða óþægilegum tilfinningum út úr líkama þínum þá kemur þú í veg fyrir óþægindi/veikindi í líkama þínum. Þér virðist nefnilega hætta mjög til streitu og taugaálags og því ættir þú alls ekki að byrgja inni tilfinningar þínar. Þú þarft að tjá tilfinningar þínar í gegnum líkama þinn eingöngu og alfarið með heilbrigðum ástríkum hætti.

Krabbinn 22.júní - 22.júlí
Hér birtast fleiri drekar en hjá nokkru öðru stjörnumerki í ársspá 2007. Drekarnir sem krabbinn drepur eru því fleiri en þeir sem Rannsóknarrétturinn ofsótti á tímum Isabellu Spánardrottningar.
Nautið 20.apríl - 20.maí
Seinni hluta ársins leitast þú við að vera tengd/ur náttúrunni og elskar hana bæði sem afmarkaða reynslu og hugtak. Það er forvitnilegt að sjá að þú reynir að læra nafnið á hverri plöntu og dýri sem þú sérð.

Sporðdreki 24.okt - 21.nóv
Forvitni þín er þó aldrei bókleg. Þú vilt lifa ævintýri þín og ert alveg til í að vera tilraunadýr þegar árið framundan er skoðað.

Ljónið 23.júlí - 22.ágúst
Árið 2007 virðist þú leggja þig fram við að læra hvernig þú eigir að elska án skilyrða. Stjörnuspekilega stjórnast þú af sólinni, miðju og orkugjafa sólarkerfisins en þú finnur innra með þér að verkefni þitt er að opna hjarta þitt.

Steingeit 22.des - 19.jan
Fyrri hluta árs virðist þú vera sú mannerð sem skipuleggur líf sitt að minnsta kosti viku fram í tímann. Þér er oftast nær illa við breytingar og ekki síður við óeðlilegar venjur. "Óeðlilegt" merkir þá allt sem þér líkar ekki. En sem betur fer, þín vegna, þá slakar þú á kröfum með auknum þroska árið framundan.

Vogin 23.sept - 23.okt
Fyrstu þrjá mánuði ársins birtist hlið vogar sem lítt sést. Það er reyndar andstæða þeirra glæsilegu og glaðlegu manneskju sem að okkur snýr, einskonar grátt þunglyndi og nánast sjúkleg tilfinningasemi. Þú reynist annað slagið vera óvirk/ur, þunglynd/ur og haldin/n svolítilli ofsóknarkennd.

Meyjan 23.ágúst - 22.sept
Þú ert yfirfull/ur af lífsorku árið 2007. Þú dreifir kröftum þínum og stundum þverr þig máttur svo að þú heldur þér oftar en ekki gangandi á taugunum einum. En með aðstoð hugleiðslu eða slökunar og heilsusamlegs mataræðis getur þú gert kraftaverk með þinni óhemjulegu orku árið framundan.

Bogamaður 22.nóv - 21.des
Ástarsambönd þín eru mun flóknari í ár en áður því þú ert glaðvær og sönn/sannur en líka hugsjónamanneskja og eirðarlaus. Að elska þig er stundum æsandi og oft sárt en ávallt ögrandi.

http://www.spamadur.is


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.07.2007 14:37:02 / guffi2712

bara eitthvað

Hæhæ, ég hef ekkert að segja! En fyrst ég er nú hérna á bókasafninu datt mér í hug að reyna að skrifa eitthvað svo hérna kemur smá yfirlit:

*Við Eiður erum flutt í Brekkugötu 1A

*Ég var að sækja um starf sem aðstoðarmaður hjá dýralækninum í Lögmannshlíð (allir hugsa mjög fallega og jákvætt, því mig langar SVO í starfið:haha:)

*Ég er að fara í VMA í haust og ætla í grunndeild byggingaryðnaðar og reyna að taka eitthvað af listnámsbrautinni en ég veit ekkert í hve mikinn skóla ég fer því ég ætla að hagræða það að vinnuni ef ég fæ hana en ekki öfugt (muna, hugsa jákvætt;))

*Uuuuummmmm, ég er svöng...

*Ég er búin að plana systradag og ætla að taka Erlu litlu í gegn! klipping, plokkun og litun (ath í fyrsta skiptið!) og fleira. Hlakka mjög mikið til :o

Mér dettur ekkert fleira í hug að segja svo ég ætla að hætta. Tíminn er hvort sem er að verða runnin út hérna í tölvunni.

Hafði það gott...og muna hugsa jákvætt:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 15:45:47 / guffi2712

Platon

Hver þekkir ekki nafnið Platon?

Platon fæddist í Aþenu árið 427 f.Kr. og hét í raun réttu nafni Aristókles, í höfuðið á föðurafa sínum. Leikfimiskennari Platons, gaf honum gælunafnið Platon vegna þess hve þrekinn hann var og hefur það nafn filgt honum æ síðar, en platon merkir bókstaflega að vera breiður eða mikill um sig.

Á unglingsárunum fékkst Platon við myndlist og skáldskap en um tvítugsaldurinn kynnntist hann Sókratesi sem varð svo lærifaðir hans og lagði þá skáldskapinn á hilluna en einbeiti sér að heimspeki í staðinn.Platon komst að því að flestir stjórnmálamenn væru spilltir og höfðu engann áhuga á annara hag og hugsuðu einungis um egin rass og misti hann svo algjörlega águngan á stjórnmálum þegar þeir dæmdu lærimeistara hans Sókrates til dauða. Þessi reynsla Platons af stjórnmálum setti mark sitt á heimspeki hans sem hann beindi einkum gegn hinum svokölluðu „sófistum“. Sófistarnir voru farandkennarar - það er að segja, þeir ferðuðust um og unnu fyrir sér sem kennarar. Nafnið er dregið af gríska orðinu sófía sem merkir „viska“.

Heimspeki Platons er gífurlega rík og margbrotin. Ein þeirra fjallar um hugmynd hans um sálina. Hann lýsti sál mannsins sem svo að henni væri skipt í þrjá hluta: grunnhvöt, vilja og skynsemi. Ef einn hlutinn næði algerri yfirhönd á kostnað hinna gæti það haft mjög slæmar afleiðingar í för með sér. Skynsemin á að stjórna hinum tveimur hlutunum en hún má ekki kúga hina hlutana. Annars getur manneskjan ekki fylgt náttúrulegum hvötum sínum eins og hungri og þorsta og myndi ekki lifa af. En ef hvatir hafa öll völd í hendur sér myndi maðurinn einfaldlega vera dýr en ekki maður. Hins vegar ef hlutarnir þrír starfa í algeru samræmi - viljinn og grunnhvötin hlýða skynseminni, - er sálin, og þar með manneskjan sem hana geymir, réttlát.Platon var svo að sjálfsögðu bara svalur á því og stofnaði skóla sem nefndist Akademía og var æðri menntastofnun þar sem lögð var stund á heimspeki og stærðfræði auk ýmissa annarra fræða. Við Akademíuna starfaði Platon til dauðadags árið 347 f.Kr.

Ég veit ekki afhverju ég var með þessa stuttu fræðslustund eða fræðslu pistil en ég held að þetta hafi verið ágætis kall. Ég veit ekki alveg afhverju en ég hef það á tilfinninguni að hann hafi verið svolítið ,,snobb" eða svona ,,yfir aðra hafinn" en hvað veit ég...? Allaveganna líkar mér vel við þessi orð sem vitnuð eru í hann og ég ætla að nota til að ljúka þessu bloggi mínu á.... 

Ég get fyrirgefið barni sem óttast myrkrið, en aftur á móti er það virkilegur harmleikur þegar fullorðið fólk hræðist dagsbirtuna. - Plató

P.S. MA júbílantar, takk fyrir 16. júní hátíðina. Það var æðislegt og ég skemmti mér konunglega.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 16:18:24 / guffi2712

Spakmæli dagsins í dag

Hin raunverulega hætta á tækniöld er ekki fyrst og fremst fólgin í þeim möguleika að vélarnar fari að hugsa eins og menn, heldur miklu fremur í því að mennirnir fari að hugsa eins og vélar.
Sydney J. Harris

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 14:15:56 / guffi2712

2xgóð helgi

Hæhæ. Síðustu tvær helgar hafa verið æðislegar!!!

Um síðustu helgi var náttúrulega aukadagur í frí, þ.e. mánudagurinn sem var náttúrulega mikill plús. Á laugardaginn var hann Eiður minn að útskrifast sem rafvirki og smiður frá VMA og var því laugardagurinn mestmegnis helgaður honum. Eftir smá kaffi með fjölskyldu hans þurfti ég og mín fjölskylda náttúrulega að vanhelga daginn fyrir drengnum vegna þess að Einar Dan, litli frændi vildi víst fá smá athygli líka. Við fórum út í sveit í fermingu Einars sem var haldin í nýja húsinu niður í skógi hjá okkur, sem heitir nú Langholt. Eftir að vera búin að troða í mig kökum, kexum og ostum hjá tengdamömmu hélt ég að ég væri nú að springa en þegar ég sá grillaða lambalærið út í sveit kom aftur þessi gífurlega sultartilfinning yfir mig og ég át eins og svín. Við Eiður stoppuðum stutt við en fólk man nú án efa eftir okkur þar sem við gáfum Einari mjög sérstaka gjöf...hann fékk frá okkur báðum slatta af klínki í umslagi og einnig smá miða frá mér. Áður en Einar fékk gjöfina las ég upp fyrir veislugesti það sem stóð í þessu myndarlega bréfi mínu. Að sjálfsögðu var þetta ein af mínum skrautlegu minningum frá því að Einar var lítill gutti og tókst mér með góðum svört-húmorslögnum sannleika, að ég held, að hitta í mark með þessari frásögn þar sem allir hlóu sig mátlausa og hrósuðu mér mikið fyrir. Þar sem Ása frænka er einstaklega flínk á myndbandsupptökuvélina, þ.e. kveikti á henni og setti á pausu, þá varð ég að lesa þetta aftur upp fyrir myndavélina eftir að frásögn hafði verið lokið.:$ Eftir fermingarveisluna fórum við Eiður svo saman aftur í bæinn og skelltum okkur á Greifann. Síðar fórum við á Kaffi Akureyri og hittum þar fyrir tilviljun Elfu sætu sem var þá stödd fyrir norðan án okkar vitundar. En í lok dags skelltum við okkur í bíó að horfa á kolruglaða sjóræningja útdrukkna af rommi. Sem sagt FRÁBÆR DAGUR!

Helgin þar á undan var æðisleg líka. Eiður dró mig heim í sveitina strax eftir vinnu á fimmtudagskvöldið. Eiður fór svo í vinnuna daginn eftir en ég tók að mér næturvagt í fjárhúsinu. Yfir daginn vorum við Ása svo að klaufaklippa í fjárhúsinu þar til ég þurfti að skreppa til Akureyrar á eina 4 klst kvöldvagt en fór þó strax aftur í sveitina. Þá var Eiður ekkert smá duglegur...hann var að dreifa skít og stoppaði svo þegar líða fór eitthvað á kvöldið og við fórum ásamt Einari á krossarann hans Eiðs og sexhjólið hans Magnúsar. Við hjökkuðumst í smá stund á því og ég fór svo að æfa mig á krossaranum sem mér finnst leiðinlega flókið, aðalega vegna þess að ég næ einganvega niður, ekki einu sinni þótt að Eiður sitji á hjólinu með mér:( Þar af leiðandi finst mér skelfilega erfitt að koma mér af stað þar sem ég er öll skökk og bjöguð, háfpartinn haldandi uppi hjólinu eða jafnvel nánast liggjandi undir því. Svo gefur maður í og reynir að vippa sér upp á hjólið með þá von í hjarta að maður fljúgi ekki bara niður hinu meigin áður en maður kemst á góða ferð. Annars finnst mér mjög gaman á krossaranum svona þangað til að ég þarf að fara stoppa. Þá kemur vandamálið upp aftur. Það munar svo rosalega miklu að ég nái niður á hjólinu þannig að ég reyni frekar að vippa mér strax af, eða hálfpartin hoppa af, áður en að hjólið lendir á hliðinni með mig undir sér (sem hefur sem betur fer ekki farið alveg svo illa ennþá, 7,9,13). Allaveganna. Restin af helgini fór svo í meiri skítadreifingar hjá Eið og fleiri fjárhúsverk handa mér, aðalega næturvaktir, auk þess tók ég mig til og þreyf fjósið á sunnudeginum. Þótt svo að mörgum fynnist þetta líklega rosalega óspennandi helgi þá fannst mér hún æðisleg og skemmti ég mér konunglega.:haha:

jæja, annað hef ég svo sem ekkert annað að segja í bili...svo ég byð bara að heilsa


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 21:24:02 / guffi2712

lífið

Enginn getur gert mann hamingjusaman, nema hann sjálfur

Ég veit nú ekki hver kom fyrstur með þetta spakmæli en þetta er alveg rétt. Hamingjan er innra með þér, leitaðu að henni, finndu hana og leifðu henni að springa út.

Hin raunverulega hætta á tækniöld er ekki fyrst og fremst fólgin í þeim möguleika að vélarnar fari að hugsa eins og menn, heldur miklu fremur í því að mennirnir fari að hugsa eins og vélar.
                                   Sydney J. Harris

Við höfum tilfinningar, ég þú og allir hinir. Segðu það sem býr innra með þér en ekki loka það af og ,,gleyma því"

Ég get fyrirgefið barni sem óttast myrkrið, en aftur á móti er það virkilegur harmleikur þegar fullorðið fólk hræðist dagsbirtuna.  - Plató

Þú lifir bara einu sinni. Ekki vera hræddur við það sem þú ert

Mikilvægasta stund manns, er líðandi stund!!!

Afhverju að sætta sig við hluti sem maður er í raun óánægður með? Afhverju að gera hluti sem maður vill ekki gera nema kannski til þess að hafa möguleika á einhverju sem maður vill gera.

Maður getur víst ekki breyst á einni nótt, það tekur tíma. En ég hugsa að þetta væru góð orð handa einhverjum þarna úti til þess að hugsa sig um... allaveganna veit ég að ég þarf virkilega að hugsa minn gang og ennþá nauðsynlegra er að framkvæma hlutina.

                                                Góðar stundir

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 21:14:29 / guffi2712

Rétt???

Equality is your enemy, it seeks out what you don't have and tells you to love them.


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 23:51:49 / guffi2712

Kvöldið er helgað nokkrum ljóðum HM - Halldóri Marteinssyni. Góðar stundir.

Ruð rós

Ég kyssti rauða rós
með lokkandi angan
sem ein blómstraði
og dafnaði
innan um frostrósirnar
á köldum vetrardegi.



HM
1982-


 

Heiðarleg ást 

Ef þú heldur að ég hafi
gefið þér
hjarta mitt, þá er það
misskilningur.

Ég afhenti það einungis
til láns,
til geymslu.

Einhvern dag
mun ég horfa
framhjá sólþurrkuðum tárum
alla leið inn í augu þín
og biðja þig
að skila því
- einhvern dag.

Bara ekki í dag...


HM
1982-

Eftirsjá

Ég sé kannski ekki
eftir því að hafa kynnst þér
því sum mistök
gefa hinu góða í lífinu
aukið vægi.

En ég sé
eftir því að hafa
samið ljóð til þín
því ljóðin voru góð
en þú varst ekki þeirra verðug.



HM
1982-


Skot úr myrkri

Eins og stjörnuhrap
í dagsbirtu
fellur ást mín
hljóðlaust
og ósýnileg
framhjá þér



HM
1982-


 

Ófagnaðarfundur

Þegar ég loksins loksins
fann sjálfan mig
komst ég að því
mér til skelfingar
að ég var aleinn og yfirgefinn
á miðjum öræfum
með bilaðan áttavita
og ekkert kort
og sólin hló hæðnishlátri
þar sem hún var við það að setjast

Þegar ég tók fyrsta skrefið
í heimferðinni
hugsaði ég með mér
hve ljúft það væri
ef ég gæti bara týnt mér aftur



HM
1982-


 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 23 október
Klukkan